Monday, August 30, 2004
Sunday, August 29, 2004
Saturday, August 28, 2004
Friday, August 27, 2004
Thursday, August 26, 2004
Wednesday, August 25, 2004
Guli hlunkurinn....

Við erum búin að fara í læknisskoðun (því ég er ennþá soldið gulur), en lækninum fannst ekki ástæða til að fara útí einhverjar rannsóknir á þessari langdregnu gulu. Ég þroskast og þyngist alveg eðlilega - þyngist mikið meiraðsegja núna (verð orðinn algjör bolti ef ég held áfram að þyngjast svona !)
Svo ég er bara í góðum fíling :-)

Monday, August 23, 2004

Mamma fór á kaffihús í gærkvöldi og skildi mig eftir heima hjá pabba - Ég varð alveg brjálaður !!!
Nei nei, við erum við að plata.... ég var ljúfur eins og lamb á meðan - eins og alltaf (oftast!). Svo kom mamma heim og gaf mér að drekka mjólk með down-town bragði og sagði mér frá ferða (drauma) plönunum sem hún og Helene ræddu: að fara í heimsókn til Helene í Kanada á næsta ári.... :-)

Sunday, August 22, 2004
Vera

Litla músin hennar Erlu frænku sem fæddist þann 24.júlí sl. var skírð í dag ! Og heitir Vera. Vera Víglunds. Okkur langaði rosalega mikið til að vera þar.... en ónei... :-(

Thursday, August 19, 2004
Arja og Aino Linnea

Arja og Aino Linnea komu í heimsókn til okkar í dag, með blóm og fullt af fötum handa Skarphéðni. Hér eru þær í röndóttu Marimekko bolunum sínum (Finnish design!), Skarpi er nú bara í H&M röndóttum brókum...
Arja benti mér á sniðuga ferðaskrifstofu sem kunningjakona hennar rekur: Gränslolösa resor, eða Ferðir án landamæra. Þar er m.a. boðið uppá kvennaferðir (bara fyrir konur!), þar sem gefinn er kostur á að kynnast menningu viðkomandi landa í gegnum konur á svæðinu, stundum með því að búa heima hjá þeim eða með því að ferðast með þeim - öðruvísi.

Tuesday, August 17, 2004
Farinn að brosa !

Já ég er farin að brosa !!! (Alveg síðan í síðustu viku þegar ég var bara 4.5 vikna) Af og til tekst mömmu og pabba (og ömmu þegar hún var hér í heimsókn) að lokka fram bros hjá mér - en það er mjög erfitt að ná því á mynd.... Á þessari mynd er ég sko nýbúinn að brosa - er allavega "kátur" á svipinn.... :-) Ég er ALGJÖR dúlla þegar ég brosi !!!

Monday, August 16, 2004
Sunday, August 15, 2004
Kräftskiva !

Við fórum í íslendinga-kräftskivu til Stínu og Hjölla í dag - sem var mjög gaman. Alltaf stemmning að sitja úti og kroppa í kräfturnar, og gaman að hitta vini okkar, sem gerist nú æ sjaldnar (kennum Skarpa um það). Þetta höfum við gert á hverju ári síðan við fluttum til Sverige - fyrir utan árið sem Stína og Hjölli fluttu til Íslands, þá hafði enginn rænu á að hafa kräftskivu..... Þetta var semsagt okkar 5. kräftskiva saman, en það eru 6 ár síðan við fluttum til Sverige (vá! time flies). Ýmislegt hefur breyst á þessum tíma, allir (o.k. margir) t.d. komnir með smábörn á arminn.... :-)
Kräftskiva er eins konar krabbaveisla, þar sem vatnakrabbar og ýmis konar meðlæti er snætt utanhúss. Þetta gera Svíarnir alltaf í ágúst, því þá eru þessi vatnakrabbadýr veidd. Núorðið er skortur á sænskum kräftum, þannig að meirihluti þeirra kräfta sem eru seldar eru innfluttar frá Asíu. Ástæðan fyrir því að þetta er snætt utanhúss er sú að þetta er ansi subbuleg iðja, safinn úr kräftunum spýtist útum allt þegar maður kroppar kjötið úr þeim...
Hér eru fleiri myndir frá kräftskivunni.

Saturday, August 14, 2004
Útí skóg...

Mamma og ég fórum út að labba í gær - og við sáum: Fullt af stórum skrautlegum fiðrildum, fullt af girnilegum bláberjum (mmm!) - og snák !! Ca 25 cm lítið grey sem hlykkjaðist yfir göngustíginn beint fyrir framan okkur og flýtti sér inní skóginn.
Næst tökum við með okkur ílát og tínum bláber - útá súrmjólkina, í bakelsi, sultu eða whatever....

Thursday, August 12, 2004
Wednesday, August 11, 2004
Tuesday, August 10, 2004
Monday, August 09, 2004
Saturday, August 07, 2004
Friday, August 06, 2004

En hún er allavega skárri en þessi stelpulega jarðarberjahúfa sem mamma prjónaði á litlu frænku mína á Íslandi.... !

Thursday, August 05, 2004
Wednesday, August 04, 2004
Helen hundraðvolta frá Kanada

Helen vinkona kom í heimsókn til að kíkja á hann Skarphéðinn. Helen er sænsk en býr í Kanada og kemur hingað til Sverige á hverju sumri. Við kynntumst fyrir löngu síðan þegar við vorum báðar að vinna á Líffræðistofnun háskólans á Íslandi - hún hefur nefnilega líka búið á Íslandi, talar íslensku reiprennandi, er alltaf eldhress og alltaf til í að gera eitthvað !! Ég er alltaf að suða í henni að flytja til baka til Svíþjóðar svo við getum verið að bralla eitthvað saman. Það kemur að því að það gerist (bara vonandi ekki eftir að ég flyt til Íslands - ef- og hvenær sem það svo sem verður).
Við fengum okkur kaffi og "amerísk" bláberjamuffins - sem voru reyndar með jarðarberjum því ég átti ekki bláber :-). (Það eina sem gerir þessi muffins amerísk held ég er stærðin: XL muffinsform og Mikið af lyftidufti svo þau búnga hátt uppúr forminu....).
