Thursday, July 09, 2009

Unnur Sóldís - 1 árs

Unnur Sóldís eyddi 1 árs afmælisdeginum sínum 9. júlí á ferðalagi frá Akureyri til Egilsstaða. Með viðkomu á nokkurm af helstu náttúrperlum Íslands; Mývatni, Dimmuborgum, Námaskarði, Goðafossi (og auðvitað Goðafossmarkaði ;-) þar sem "Handverkskonur á milli heiða" selja vöru sína).
Ekki amalegur afmælisdagur það!





Wednesday, July 08, 2009

Skarphéðinn 5 ára - for real.

Fimm ára afmælisdeginum sínum eyddi Skarphéðinn á Akureyri. Honum var boðið uppá steiktan fisk í hádeginu hjá Aðalheiði langömmu, rölti svo niðrí bæ og fékk ís á Ráðhústorginu, tertu á kaffihúsinu í gróðrastöðinni Vín, heimsótti handverksbúlluna "Galleríið í sveitinni", kíkti í kaffi til Dennýar (og fékk sjónvarpsköku og vöfflur!) og át svo grillað lambaket hjá Bjarna Pálssyni um kveldið!
Svaka dagskrá.... :-)







alt=""id="BLOGGER_PHOTO_ID_5366235691999373186" />

Saturday, July 04, 2009

Unnur Sóldís skírð

Þann 4.júlí var Unnur Sóldís skírð í bústað Sigga bró (Halldóru) í Grímsnesinu. Í yndislega grænu umhverfi og fallegu veðri. Mjög ljúft og eftirminnilegt. Í leiðinni var smá afmæliskaffi fyrir þau Skarphéðinn (5 ára 8.júlí) og Unni Sóldísi (1 árs 9.júlí).