Saturday, September 13, 2008

Unnur Sóldís módel

Jæja, þá er Unnur fegurðardís búin að fá fyrsta módelverkefnið sitt :-).
Það verður á þriðjudaginn kemur á uppákomunni Eat Love Live, sem kvennanetverkið 4good friends stendur fyrir. Þetta kvöld fjallar s.s. um það "Að lifa og borða meðvitað" - dagskráin hljómar mjög spennó. Unnur verður fyrirsæta fyrir Ecoloco sem selur ekológísk barnaföt á netinu - mjög flott!

Það er hún Lóa vinkona okkar sem á og rekur þessa netverslun, ótrúlega dugleg! Er að þarna að láta drauminn sinn rætast, ásamt því að vera að vinna 80% í venjulegu vinnunni sinni. Við erum svo stoltar af henni, Unnur og ég.

Ég, Begga og Lóa (og Unnur Sóldís of kors) höfum hist í hádeginu 1x í viku undanfarið (já já, mig dreymir um að vera svona Lattelunch-mamma = alltaf úti á stöðunum að drekka kaffi latte). Þar erum við Begga að "skipta okkur af" málum hjá Lóu; Útlitinu á síðunni, hvernig nafnspjöldin eiga að líta út osfrv. Enda erum við konur með Skoðanir :-).
Begga er by the way með mjög skemmtilegt matarblogg, enda mikill matgæðingur.




2 Comments:

Blogger loaxel said...

Halldóra, ég ræð þig sem markaðsstjóra hjá Ecoloco.
knús
Lóa

1:01 pm  
Blogger loaxel said...

p.s. nú erum við líka farin að blogga...
Settum allar myndir sumarsins á nýja bloggið okkar. Allt á einu bretti.

1:02 pm  

Post a Comment

<< Home