Wednesday, January 03, 2007

Ísland er mjög fínt, bara doldið kalt / blautt

Við Skarphéðinn erum búin að vera að spá í þetta með Ísland og Íslendinga. Hallgrímur Helgason skifaði meinfyndna grein um málið fyrir nokkrum árum, við látum hana fljóta hér með, svo fleiri geti brosað útí annað svona á nýja árinu (svo vantar bara að finna eitthvað svipað um Svíþjóð..... :-) ).

Flestir ferðamenn koma til Íslands til þess að fara útí náttúruna. Náttúran á Íslandi er ágæt. Vandamálið er bara að það er ekkert hægt að vera úti á Íslandi. Það er alltof kalt. Íslendingar eru aldrei "úti" í náttúrunni. Þeir vita sem er að það þýðir ekkert. Þeir skoða hana bara í gegnum gler: Inni í sumarbústað eða í bílnum á leiðinni þangað. Þegar Íslendingar keyra út á land stoppa þeir aldrei nema til að kaupa bensín og pulsu. Þeir eru alltaf að flýta sér. Þeir vilja helst ná uppí bústað fyrir fréttir, áður en leikurinn hefst, áður en heimildamyndin um hálendið byrjar. Um leið og þeir eru komnir hringja þeir í kunningjana til að láta vita að þeir hafi ekki verið "nema einn og hálfan tíma uppeftir". Við Íslendingar erum fyrir löngu búnir að sætta okkur við að horfa á náttúruna í gegnum gler: Stofuglugga, framrúðu eða sjónvarpsskjá. Við mælum landslag í mínútum. "Borgarfjörðurinn er nú bara korter". "Ég fór Holtavörðuheiðina á innan við 12 mínútum". Náttúra Íslands er ónáttúra Íslendinga.

Það eru bara brjálaðir útlendingar sem fara "út" í íslenska náttúru: Þýskir álfavinir sem leggjast út í óbyggðirnar með sínar 20 kg álfamyndavélar og koma ekki til baka fyrr en þurrmjólkurbirgðirnar eru á þrotum, svissneskir bankastarfsmenn sem fara í brúðkaupsferð um eyðifirðina fyrir vestan af því það er ekki séns að eyða neinum peningum þar eða hollensk masókista-pör sem fara á reiðhjólum í kringum landið með tjald úr fjölmettuðum kornmassa sem þau éta smám saman á leiðinni. Þegar Íslendingar keyra á sínum jeppum framhjá svoleiðis liði reyna þeir alltaf að skvetta á það úr drullupollum. Við eigum erfitt með að sætta okkur við það að eina fólkið sem leggur það á sig að upplifa íslenska náttúru eru útlendingar. Við fyrirlítum útlendu túristana og tökum þá aldrei uppí bílinn ef þeir gefast upp á leiðinni yfir Möðrudalsöræfin í úrhellisregni og roki. "Ja, þeim er nær að vera ekki á bíl eins og almennilegt fólk." Besta myndin af nútíma-Íslendingum: Ungt par sem situr á stuttermabol inní funheitum bíl útí 6 stiga frosti og hörku skafrenningi að borða ís.

Sum okkar fá þó samviskubit yfir útiveruleysinu og verja öllu sínum frítíma í það að "vernda hálendi Íslands" og berjast gegn hverskonar virkjunarframkvæmdum þar. Samt hafa flestir þeir náttúruverndarsinnar aldrei komið uppá hálendið. En þeir segjast reyndar vera á leiðinni. Þeir "ætla að fara í sumar" af því að þeir "komust ekki í fyrra" af því að þá fóru þeir á Roskilde. Í ærandi rafmagnshávaðanum frá Rammstein og Radiohead var gott að vita af þögninni á gjörvöllu hálendinu heima.

Sannleikurinn er hinsvegar sá að hálendi Íslands er hundleiðinlegt. Þarna er ekkert að sjá nema ljót eldfjöll, úrill hraun og sanda sem aðeins hörðustu mínímalistar hafa gaman af. Árnar eru moldbrúnar af jöklaskít, fossarnir eins og illa lyktandi niðurföll og hin frægu jökulsárgljúfur lítið annað en risavaxin opin holræsi. Á þessum auðnum vaxa ekki nema allra mestu þverhausarnir í plönturíkinu og einu fuglarnir sem sjást þarna eru þeir sem hafa orðið fyrir alvarlegu einelti niðrá fjörðunum: Bæklaðir mávar og blindir hrafnar, kannski einn nefbrotinn lundi eða samkynhneigður spói. Fyrir utan þá er í raun ekkert merkilegt að sjá þarna nema nokkrar fallegar virkjanir og tvo, þrjá jökla sem eru reyndar orðnir svo góðir með sig af öllum opnumyndunum sem þeir eru búnir að fá af sér í Die Zeit og Welt am Sonntag að maður getur ekki einu sinni gert þeim það að horfa á þá. Hvað er líka svona merkilegt við jökla? Þetta eru bara einhverjir grútskítugir íshlunkar, ofmetnar risaeðlur frá ísöldinni sem leið, stafa engu frá sér nema kulda, öllum til óþurftar og mættu helst bráðna sem fyrst. En það má víst ekki. Bráðum verða þýsku jöklanördarnir búnir að stofna félag með slagorðinu "verndum jöklana!" í ætt við okkar innlenda slagorð "verndum hálendið!" Samt eru nú jöklar bara frosið vatn. En það er semsagt allt í lagi að helmingurinn af hálendinu fari undir frosið vatn þó enginn megi hugsa til þess að það fari undir venjulegt vatn.

Það er margt skrýtið í náttúruverndinni. Líklegast er hún bara íhaldssemi í sinni hreinustu mynd. Og nú beinist hún að þeim áformum Ríkisstjórnarinnar að reisa stærstu virkjun Íslandssögunnar á hálendinu norður af Vatnajökli sem á að sjá nýju álveri fyrir rafmagni, álveri sem reisa á í einum af fjörðunum fyrir austan. Þrátt fyrir fjölbreytta sókn Íslendinga inn á ný atvinnusvið eins og hugbúnaðargerð, gerviútlimaframleiðslu og fiskeldi dettur ráðamönnum aldrei neitt annað í hug en álver þegar kemur að því að peppa upp atvinnulífið. Og fólkið fyrir austan hrópar á álver; Íslendinga dreymir um að vinna í álveri af því það er svo hlýtt inní þeim: Þeir eru fyrir löngu hættir að vinna í ísköldum frystihúsunum þar sem tómir útlendingar standa við færiböndin og það gefur auga leið að "úti"-vinna er óvinsælasta vinna á Íslandi.

En hálendisfasistarnir í höfuðborginni sem allir vinna inni á þægilegum skrifstofum vilja meina landsbyggðarfólkinu að fá að verma sín andlit við ofnana í álverunum, og allt í nafni náttúrufriðunar, hinnar nýju trúar á stokka og steina. Jöklasnobb Íslendinga verður víst að skrifast á nóbelsskáldið okkar Halldór Kiljan Laxness. Hann átti það til að fara yfir strikið í ofdýrkun á íslenskri náttúru sem samkvæmt honum var "ofar æðstu kröfu" (hvað sem það nú þýðir) og bjó í raun til hina þjóðernissinnuðu náttúrudýrkun sem á einkennilegan hátt var ætíð tengd sósíalisma og enn er ekki með öllu dauð. Hún var eiginlega tilbrigði við stalíníska kenningu: "Sósíalismi í einu landi sem er fegursta land í heimi". Formúlan var þessi: Einn fjörusteinn í flæðarmáli Íslands er dýrmætari en allt Hollywood. Það tók ekki að fjara undan þessari kenningu fyrr en Hollywood gerði myndina "Romancing the Stone" og nú er reyndar búið að selja þennan umrædda stein. Það var kvikmyndamógúll frá L.A. sem keypti hann, og allan fjörðinn að auki. "Þar sem jökulinn ber við loft... þar ríkir fegurðin ein" er frægasta Laxness-tilvitnunin og var þegar í stað tattúveruð yfir þvera þjóðarbringuna sem síðan hefur verið barin af náttúruverndandi þjóðernissinnum allar götur síðan. Sannleikurinn er hinsvegar sá að þar sem jökulinn ber við loft ríkir fyrst og fremst kuldi. Kuldi og leiðindi. Það er það sem menn vilja vernda. Af því á meginlandinu er víst til fullt af fólki sem sækir í slíkt. Það hefur verið rannsakað: Ísland er það land sem laðar að sér leiðinlegustu túrista í heimi: Fólk sem kemur með allan matinn með sér en enga peninga og fer að sofa klukkan tíu á kvöldin til þess að geta vaknað klukkan fimm til þess að verða fyrst niður í morgunmat.

Ég slysaðist einu sinni til að gista í fjallakofa í einum þjóðgarðinum okkar. Í kojuhorni hafði hreiðrað um sig ein þýskumælandi meinlætakona; grænmetisgrá í framan og vannærð á kroppinn; sannkölluð jöklanunna. Hún fylgdist stöðugt með okkur þegar við opnuðum ísskápinn; að við stælumst ekki í Soja-Vollmilch-fernuna hennar sem hún hafði flutt með sér yfir hálfa Evrópu. Við vinirnir grilluðum lambakjöt fyrir utan kofann og henni tókst næstum því að slökkva í kolunum með augnaráðinu einu saman. Hún var greinilega hardcore grænmetisæta; sú sem borðar bara grænmeti sem vex í yfir 600 m hæð yfir sjávarmáli. Þetta var sumarið ´98: Heimsmeistarakeppnin í fótbolta stóð yfir. Fyrir einhverja undarlega en mjög íslenska tilviljun stóð gamalt Blaupunkt-sjónvarpstæki í einu horni kofans. Okkur tókst að kveikja á því: England-Rúmenía. Það var eins og að kveikja á klámmynd í klaustri. Strax í fyrri hálfleik hóf hún að spyrja: "Hvenær er þetta... þessi leikur búinn?" Eftir að hún hafði þrisvar sinnum tjáð okkur að samkvæmt alþjóðlegum reglum sem gilda í þjóðgörðum ætti hún rétt á "Ruhe" klukkan 22.00 skrúfuðum við niður í hljóðinu. Um miðjan seinni hálfleikinn stundi hún upp úr svefnpokanum að hún gæti ekki sofið, skermurinn væri of bjartur. "Zu hell". Við þóttumst ekki skilja og sögðum henni að hún væri komin "to hell". Það er engin tilviljun að náttúrudýrkendur og náttúruverndarfólk er margt fyrrverandi kommúnistar. Það er stutt í þá fasísku taug sem vill helst útrýma tiktúrum mannlífsins fyrir stílhreina heildarmynd þar sem vindurinn fær einn að blása og sandurinn að fjúka. Þar sem mosinn breiðir úr sér samkvæmt fimm ára áætlunum.

II.

En þó Ísland sé kalt og Íslendingar hafi lært það á 1100 árum að halda sig inni við koma þó stundum sólardagar á "skerinu". Í Reykjavík eru það þrír dagar á ári. Einn í júní og tveir í júlí. Þá er öllum gefið "sólarfrí": fyrirtækjum er lokað og fólk fer uppí jeppana sína og keyrir uppí bústað. Munurinn er hinsvegar sá að nú er hægt að hafa rúðuna opna á leiðinni. Fyrir norðan eru sólardagarnir hinsvegar fleiri. Átta talsins. Gallinn við þá er hinsvegar sá að þá fara allir íbúarnir í öllum litlu þorpunum úr öllum fötunum. Það skiptir engu máli hvort fólk er tvítugt eða hundrað ára; allir á nærbuxunum niður í kaupfélag. Þá er gott að vera með sólgleraugu þegar maður stoppar á bensínstöð og afgreiðslumaðurinn, 73ggja ára skröggur með innfallna bringu, kemur töltandi á sundskýlu einni saman útúr afgreiðsluhúsinu og spyr hvort eigi að "fyllann?" Þá er kannski heill vetur frá síðasta "sólardegi" og næpuhvítur líkami afgreiðslumannsinns getur valdið asagláku hjá kúnnanum. (Í torfbæjunum í gamla daga, þegar ljós var af skornum skammti, fóru Íslendingar stundum úr að ofan til að fá smá birtu í kofann.) Fyrir utan þetta allt er Ísland ofur venjulegt land með ofur venjulegu þjóðfélagi. Eins og smækkuð mynd af öllum öðrum þjóðfélögum.

Á Íslandi eru margir fjölmiðlar. Við erum með tvær ríkisreknar útvarpsstöðvar. Önnur þeirra útvarpar svotil eingöngu veðurfregnum allan sólarhringinn. Þessi stöð er vinsælust hjá gamla fólkinu. Þegar Íslendingar eldast gera þeir svotil ekkert annað en að spá í veðrið. Á elliheimilunum eru starfræktir Veðurklúbbar og einnig Veðraspilavíti þar sem veðjað er grimmt á hitastig og vindstyrk morgundagsins. Það eru stórar fjárhæðir sem skipta um hendur eftir aðal veðurfréttatímann á hverju kvöldi. Fyrir utan þessar tvær stöðvar eru 5 "frjálsar útvarpsstöðvar". Þær eru allar í eigu sama mannsins. Hann býr hinsvegar ekki á Íslandi þannig að það er frekar lítið hlustað á þessar stöðvar.

Stærsta dagblaðið á Íslandi heitir Morgunblaðið. Það er samt varla hægt að kalla það dagblað. Það kemur bara út 300 daga á ári. Það tekur sér hálfsmánaðar jólafrí, tíu daga páskafrí og kemur aldrei út á mánudögum. Þetta er samkvæmt gamalli hefð. Um miðja síðustu öld ákvað Ríkisstjórn Íslands að hafa einn "fréttalausan dag" í hverri viku. Þetta var hugsað til þess að koma í veg fyrir sjóslys og umferðaróhöpp og lá í augum uppi að það yrði sunnudagur. Þá myndi ekkert gerast. Og þá þyrfti ekkert blað á mánudögum. Okkur hefur yfirleitt tekist að fylgja þessari reglu, en eldfjöllin eiga það stundum til að brjóta hana. Í fyrra byrjaði til dæmis Hekla að gjósa á laugardags-eftirmiðdegi. Morgunblaðsmenn skildu ekkert í þessu, því Hekla hafði yfirleitt gosið í miðri viku hingað til. Og þar sem þeir voru nýbúnir að loka sunnudagsblaðinu og þetta var auk þess laugardagur fyrir páskadag, þá urðu þeir að láta sig hafa það að birta fyrirsögnina "Gos í Heklu" fjórum dögum eftir að gosið hófst. Gosið var reyndar búið þá, en það var allt í lagi. Morgunblaðið beið með þáfrétt þartil daginn eftir.

Á undanförnum árum hafa erlendir fjölmiðlar skrifað mikið um það hve auðvelt sé að fá íslenskar konur með sér í rúmið. Fyrir einu og hálfu ári breyttist það hinsvegar. Þá var opnunartími skemmtistaða í Reykjavík gefinn frjáls og nú er eiginlega orðið vonlaust fyrir menn að ná sér í konu á næturlífinu. Áður fyrr var öllum hent út klukkan þrjú og þá lá leiðin beint heim í rúm en nú er fólk að rottast þetta á stöðunum til klukkan sjö á morgnana. Þá er eftir að finna leigubíl, laga te, og spjalla soldið. Þá er klukkan yfirleitt orðin níu og fólk búið að vera á djamminu í 12 klukkutíma. Það skeður æ oftar að það sofnar bara í staðinn fyrir að sofa hjá. Á þeim tveimur árum síðan opnunartímanum var breytt hefur frjálsum barneignum á Íslandi fækkað um helming. Og þar sem lausaleikskróar eru undirstaða Íslensks samfélags hefur borgarstjórn Reykjavíkur nú ákveðið að færa opnunartímann í fyrra horf.

Þá að íþróttum. Við erum þokkalega góðir í fótbolta og eigum marga góða knattspyrnumenn sem leika með erlendum stórliðum. Landsliðið okkar er nokkuð gott en deildin hérna heima er frekar slöpp. Íslenski boltinn er eins og enski boltinn á róandi lyfjum. Það er mjög erfitt að sjá muninn á því í sjónvarpinu hvort verið sé að sýna hægt eða ekki. Það þarf reyndar mjög sjaldan að sýna atriði úr leikjunum í íslensku deildinni í hægri endursýningu. Það gerist yfirleitt ekki neitt fyrr en á 80. mínútu. Þá eru leikmenn sjálfir orðnir svo leiðir á leiknum að þeir byrja að slást. Það getur svosem oft verið gaman. Íslenskir fótboltamenn berjast oft mjög vel.

Á Íslandi eru ekki margir innflytjendur. Flestir eru frá Póllandi og fyrrum Júgóslavíulöndunum. Þeir vinna flestir í fiski af því að það er orðið alveg vonlaust að fá Íslendinga til þess; þeim finnst svo kalt í frystihúsunum. Mjög fáir "nýbúanna" eru svartir. Þeir verða því oft fyrir kynþáttafordómum. Í íslenska boltanum eru nokkrir svartir sóknarmenn. Það ríkir samt almennt samkomulag á milli liðanna og áhorfenda að láta þá ekki skora. Það hefur tekist hingað til. Reyndar tókst einum þeirra að skora mark fyrir tveimur árum. Hvorki áhorfendur né samherjar hans fögnuðu markinu. Það var heldur ekki talið með í úrslitum leiksins. Við viljum samt hafa nokkra svarta menn í liðunum. Það lúkkar meira prófessjonal.

Nýlega hefur þessu kynþáttahatri okkar verið gefið nafnið "hversdagsrasismi". Hann er alls ekki eins grimmur og "heilsársrasisminnsem stundaður er meðal stærri þjóða. Við Íslendingar gefum fórnarlömbunum frí um helgar. Og við viljum endilega fá fleiri útlendinga til landsins af því að reynslan hefur sýnt okkur að þeir eiga mun auðveldara með að harka af sér hina óblíðu íslensku veðráttu en við sjálf. Okkur vantar alltaf fólk til þess að vinna "úti"-störfin. Ísland er ágætt. Bara dáldið kalt. En við bindum miklar vonir við Global Warming.

Grein skrifuð fyrir Danska Helgarblaðið af Hallgrími Helgasyni.

Weekendavisen, birt helgina 21.-22. júlí 2001.



0 Comments:

Post a Comment

<< Home