Thursday, April 16, 2009

Vor - við elskum þig.

Veðrið um páskahelgina var yndislegt hér hjá okkur í Svíþjóð. Það varð svo heitt á pallinum á bakvið hjá okkur í sólinni að Unnur Sóldís var úti að viðra sig á samfellunni.

Og vorið hljóp í rassinn á þeim Skarphéðni og Söru á trampolíninu úti á Värmdö.... :-)

Neðst má sjá heppnustu kanínu í heimi, Viktor sem á sumarkanínuhús á Värmdö, þar sem hann eyðir helgum og sumarfríi :-) (Hann er líka mjög klár að leika sér með bolta).








1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

litlu krúttin mín!
pældu í því að það er ekki langt í að unnur sóldís fari að leika við Skarpó og félaga!
E

12:01 pm  

Post a Comment

<< Home