Monday, March 23, 2009

Fyrsti pikknikk ársins

Skarphéðinn og mamman fóru í Sjöhistoriska museet (Sjóminjasafnið) í gær með Helene og Liam. Fyrst höfðum við pikknikk við vatnið - með samlokum og kaffi og djús og heitu kakói og gulrótarköku... Mmmmmm... Mjög kósí. Og spennó og skemmtilegt fannst strákunum.

Sex stiga hiti, vatnið enn frosið, en við öll í vorskapi. En svo um kvöldið fór að snjóa!!!
Vor hvað....?



2 Comments:

Blogger Allegri all'aperto said...

Ef thetta er ekki vorbodi...

9:07 am  
Blogger loaxel said...

Þið eruð köld! En mjög kósí að hafa pikknikk!

11:12 pm  

Post a Comment

<< Home