Tuesday, August 26, 2008

Bros

Þessi litla rúsínubolla er svo sæt þegar hún brosir...!!!
Mamman bráðnar alveg þegar hún fær svona falleg bros - það er ótrúlega mögnuð tilfinning. Svona brosir hún alltaf á hverjum morgni þegar hún vaknar. Svo er hún farin að hjala svo yndislega líka... oh, þessi dúlla!!!! Er svo yndisleg.

Það er soldið fyndið hvað maður var alltaf með myndavélina á lofti og myndaði hverja grettu bæði hjá Hrefnu og Skarphéðni - ég tala nú ekki um hjá Skarphéðni, á tímum stafrænna myndavéla. Held ég eigi nánast mynd af akkúrat fyrsta brosinu hjá Skarphéðni :-). En núna er öldin önnur...:-)(third child syndrome!). Vissulega er myndavélin mikið á lofti, en ekki eins mikið. Og þegar daman brosir - þá brosir maður bara á móti. Og nýtur.

Hún var annars í vigtun í dag, og þyngist vel. Er orðin 4250g og 53 cm. Sjö vikna á morgun.






4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

OMG hvað hún er sæt svona brosandi! Vá... úff. Ég hlakka svo til að knúsa hana aftur...
E

12:36 am  
Anonymous Anonymous said...

OMG hvað hún er sæt svona brosandi! Vá... úff. Ég hlakka svo til að knúsa hana aftur...
E

12:36 am  
Anonymous Anonymous said...

god, ég er ekki að ná því af hverju kommentin mín sum koma alltaf 2x... :S
E

12:36 am  
Anonymous Anonymous said...

Alger krúsírúsídúlla! Jiii hvað ég hlakka til að fá að sjá hana á morgun!
Lóa

10:02 am  

Post a Comment

<< Home