Tuesday, January 06, 2009

Hrefna er tuttugu ára í dag!

Hún Hrefna okkar er tvítug í dag. Þessi elska.... rosalega líður tíminn hratt!!!

Í tilefni stórafmælisins ætlar hún að bregða sér í viku til Tenerife á Kanarí með vini sínum. Þau pöntuðu svona "sista minuten" ferð frá 11.- 18.jan (ferðirnar yfir 6.jan voru búnar!). Fengu þetta mjög ódýrt; eða á 2.500 skr. - en "ospecificerad boende", sem þýðir að gistingin getur verið hvernig sem er. En þegar maður er 20 ára skiptir það nú ekki öllu máli.....!! Og svo er jú smá sjéns að bara lúxus-svítan sé laus og að þau lendi í henni..... :-).

Núna er Hrefna annars að vinna hjá Q-work, ráðningarfyrirtæki sem mannar Åhléns verslunarkeðjurnar, er s.s. "búðarkona" í mismunandi Åhléns búðum, og líkar vel. Nóg að gera í jólaösinni í des., líklegast líka á útsölunum í janúar, en spurning með framhaldið.

Mamman og Unnur Sóldís senda afmælisbarninu ástarkveðjur frá Íslandinu; Til hamingju með daginn stóra stelpan okkar !!!!!

Þessi mynd var tekin í sumar, þegar Hrefna tók stúdentinn :-).

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með afmælið elsku Hrefna okkar :) Og góða ferð í sólina!

Kossar og knús af horninu í Skerjó

10:04 pm  
Anonymous Anonymous said...

til hamingju sæta stóra flotta frænka :) Ótrúlega flott að vera tvítugur (man það sko!!)
Erla, Viggi og Vera

9:40 am  

Post a Comment

<< Home